Enn einn nýr frá Geely á Evrópumarkað
Zeekr frá Geely mun fara inn á evrópskan markað árið 2023 með 001 EV-rafbilinn
Forstjóri úrvals EV vörumerkisins sagði að opinber tilkynning verði gefin út í lok þessa mánaðar.
Samkvæmt vefsíðunni INSIDEEVs ætlar Zeekr, sem er hágæða rafbílavörumerki Geely Auto að fara inn á valda evrópska markaði árið 2023, en vænta má opinberrar tilkynningar sem verður gefin út í lok þessa mánaðar.
Zeekr er eitt af nokkrum vörumerkjum sem stjórnað er af Geely Holding og Geely Auto, þar á meðal Volvo Cars, Polestar, Lotus, Lynk&Co, Geometry, Proton, LEVC og fleiri. Geely ræður einnig yfir 50 prósentum í Smart og er minnihlutaeigandi í Aston Martin og Mercedes-Benz.
An Conghui, forstjóri Zeekr, sem einnig er forseti Geely Holding og stjórnarformaður Geely Auto, staðfesti áætlanirnar við kynningu á nýjum Zeekr 009 rafknúnum „minivan“ í síðustu viku.
Gera Zeekr að alþjóðlegu vörumerki
Geely ætlar að gera Zeekr að alþjóðlegu vörumerki og Evrópa verður fyrsta skrefið í þá átt. An sagði að rafbíla-vörumerkið muni gera áætlanir sínar opinberar og tilkynna frekari upplýsingar um stefnu sína í Evrópu í lok nóvember. Framkvæmdastjórinn staðfesti að Zeekr muni hefja sölu á 001 „liftback“ á völdum mörkuðum í Evrópu á næsta ári.
Samkvæmt heimildum í höfuðstöðvum Geely í Hangzhou, sem Autocar vitnar í, ætlar Zeekr einnig að selja nýjan fjögurra dyra fólksbíla og meðalstærðarjeppa í Evrópu, báðir hannaðir til að uppfylla evrópskar öryggisreglur.
Að sögn munu tvær aðrar Zeekr gerðir fylgja í kjölfarið árið 2024, en engar upplýsingar liggja fyrir um þær eins og er.
Rafbíla-vörumerkið hafði sagt áður að það ætli að stækka kínverska úrvalið í að minnsta kosti sex gerðir á næstu tveimur árum.
Zeekr hefur ekki gefið upp hvaða evrópska markaði það ætlar að fara inn á eða hvort það íhugar að bjóða upp á hægri stýrisútgáfur af gerðum sínum fyrir Bretlandsmarkað og aðra markaði fyrir stýrið hægra megin í Evrópu.
Móðurfélagið Geely leitast við að sækja fram á veg og skrá Zeekr sem sjálfstætt fyrirtæki. Þann 31. október lagði Geely Holding til að skrá Zeekr í kauphöllinni í Hong Kong og hefur sú tillaga verið samþykkt. Upplýsingar um tímasetningu hafa þó ekki enn verið staðfestar.
Zeekr kom á markað árið 2021 og var með eina gerð til sölu áður en 009 smábíllinn kom á markað — 001 „liftbakinn“.
Vörumerkið skráði 10.109 sölur í Kína í október, sem er metárangur fyrir nafnið og fyrirtækið hingað til.
Samkvæmt forstjóra þess er Zeekr á góðri leið að ná 70.000 bíla sölu á þessu ári. Hann sagði einnig að vörumerkið haldi sig við fyrra markmið að selja allt að 650.000 farartæki á ári fyrir árið 2025.
(frétt á vef INSIDEEVs)
Umræður um þessa grein