Það er óhætt að segja að maðurinn að baki Tesla-veldinu, Elon Musk, komi sífellt á óvart. Hvort hann var að grínast eður ei þegar hann skrifaði að brátt yrði hægt að láta hávært „frethljóð“ óma í utanáliggjandi hátalara bílsins.
Model S, Model 3, Model X, og Model Y sem voru framleidd í eftir miðjan desember 2020 eru með slíkan hátalara og geta eigendur til dæmis valið hvernig flauta bílsins hljómar. Reyndar virkar sú aðeins þegar bíllinn er kyrrstæður en á ferð er það hið hefðbundna flautu-píp sem er virkt.
Auk þess má spila tónlist og nánast hvað sem fólki dettur í hug. Er þetta einkum til gamans gert og hefur auðvitað ekki áhrif á aksturseiginleika bílsins en ólöglegt er að nota hátalarann þegar bíllinn er á ferð.
„Prumpuhúmorinn“ er margra
Fyrir nokkrum klukkutímum skrifaði Elon Musk eftirfarandi á Twitter:
Viðbrögðin létu ekki á sér standa frekar en fyrri daginn en Musk er með 76 milljónir fylgjenda á Twitter. Kátína og almennur fíflagangur var einkennandi í mörgum athugasemdanna við færsluna en ljóst er að klósettbrandarar, prumpuhúmor og búkhljóð vekja gleði hjá fólki á ýmsum aldri.
Sumir aðdáendur forstjóra Tesla sögðu að nú „elskuðu“ þeir Musk enn heitar en áður. Já, óvenjuleg leið að hjarta aðdáenda, svo ekki sé meira sagt.
Og vitleysan heldur áfram:
Fleira um aukahluti og hugbúnað Tesla:
Útilegugræjan Tesla
Ljósasprell Teslu: Gagn eða gaman?
CNN gerir gys að sjálfkeyrslubúnaði Tesla
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein