Hryggilegt mál kom upp í Hollandi nýverið. Bifvélavirki frá Ferrari-verkstæði var að reynsluaka einum af þeim 400 Ferrari Enzo sem framleiddir hafa verið í heiminum. Hann klessti bílinn í döðlur og já, bíllinn kostar hálfan milljarð króna.
Í upphafi var málið sveipað dulúð en þokunni er nú að létta þó útlitið sé enn svart.
Að morgni þriðjudagsins 18. janúar var bifvélavirki á vegum Kroymans Automotive B.V. að prófa Ferrari Enzo af árgerð 2003. Hvort það var prófunarakstur eftir viðgerð eða ekki kemur ekki fram en í það minnsta voru grænar númeraplötur á bílnum. Það mun á þessum slóðum gefa til kynna að um reynslu- eða prófunarakstur sé að ræða.
Skemmst er frá því að segja að bíllinn endaði á tré við veginn í nágrenni bæjarins Baarn sem er ekkert hriklalega langt frá Amsterdam.
Mildur vetrarmorgunn, Ferrari með 6 lítra V12 vél sem skilar rúmum 650 hestöflum og vanur maður við stýrið. Hvernig gerðist þetta?
Í fyrstu „bíla“ fréttum sem bárust af slysinu var sagt að ekki væri vitað hver hefði ekið bílnum. Það kom fljótlega í ljós, enda er bíllinn einn af þremur Ferrari Enzo sem skráðir eru í Hollandi. Sem fyrr segir; fágætur bíll eða eitt af 400 eintökum sem framleidd voru í heildina á árunum 2002 – 2004.
Nokkrar hræður voru á gangi þar sem slysið átti sér stað og því nóg af myndefni og vitnum. Því í dag eru nánast allir með myndavélar í símunum sínum. Hvernig fórum við eiginlega að hér áður? Fyrir tíma myndavélasíma?
Myndin skýrist smám saman
Ökumaður bílsins slasaðist en ekki alvarlega og eftir því sem dagarnir líða hafa púslin raðast betur saman og myndin er farin að skýrast ögn. Þó er eitt og annað sem ekki gengur upp í fljótu bragði.
Til dæmis er staðhæft víða (tökum ekki 100% mark á því sem kemur frmn í óáreiðanlegum yfirlýsingum) að bifvélavirkinn hafi slökkt á spyrnustýringunni og þannig flangsast eins og snýtupappír í hvirfilbyl beint á næsta tré.
Sérfróður Ferrari-bifvélavirki ætti nú að vita eitthvað hvað hann er að gera þegar hann prófar það sem hann er búinn að vera að krukka í. Jæja, þetta eru vangaveltur mínar sem ekki eiga sér endilega rökfræðilegar stoðir.
Dæmið snýst við
Þó að þetta séu tuttugu ára gamlir bílar eru þeir svakalega verðmætir. Hér er til dæmis einn ólaskaður til sölu.
Þó svo að bíllinn sem um ræðir líti út fyrir að vera í döðlum þá eru mögulega færir og þar til bærir menn (höldum klessukeyraranum hollenska utan við þetta) sem geta gert við hann.
Á umræðuþráðum sem og á YouTube og Instagram hafa menn aðallega verið að gera grín að „þessum aula“ sem bara klessti á tré o.s.frv. Svo skyndilega snérist dæmið við: Rosalega margir hafa sýnt áhuga á að kaupa þann klessta og verður áhugavert að sjá hvernig þetta fer.
Bíll sem fólk vill með ánægju greiða rúmar 200 milljónir fyrir í þessu klessuástandi hlýtur að vera merkilegur!
En mikið óskaplega finn ég til með bifvélavirkjanum. Sérstaklega þegar maður skoðar vefsíðu Kroymans Automotive B.V. því þar er listi yfir strarfsfólkið. Bifvélavirkjarnir eru nú ekki nema sex eða sjö talsins.
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein