Dodge Charger Hellacious 1968
Spurning hvort þetta sé einn sá svalasti Dodge Charger sem sést hefur til þessa? SpeedKore sem sérhæfir sig í ofurútfærslum á gömlum bílum hefur reyndar smíðað þó nokkra bíla í þessum dúr.
Svalur bíómyndarbíll
Af hverju er þessi svona svalur? Tvær ástæður! Í fyrsta lagi er í honum Hellcat mótor, miðjusettur, staðsettur fyrir aftan framsætin. Í öðru lagi er þessi nákvæmlega eins og Chargerinn sem Dominic Toretto ekur í nýutkominni bíómynd F9, The Fast Saga.
SpeedKore kallar bílinn „Hellacious“ sem gæti útlagst sem „hinn hrikalegi“.
Kraftur sem skilar sér
Yfirleitt smíðar SpeedKore bíla sína að öllu leyti úr koltrefjum. Sean Smith hönnunarstúdíóið lagði upp með að þetta eintak yrði mun „öflugra“ í útliti og bíllinn allur mun breiðari en þeir bílar sem SpeedKore hefur áður smíðað.
Risastór afturglugginn sýnir síðan 707 hestafla skepnuna sem staðsett er fyrir aftan framsætin. Og nei, þessum Hellcat mótor hefur ekki verið breytt neitt – hann er fullkomlega jafn öflugur eins og hann kemur úr verksmiðjunni.
Vélin óbreytt en restin hugmyndaflug
Reyndar er eiginlega allt stöffið utan um mótorinn eins langt frá því að vera verksmiðjuframleitt og hægt er að ímynda sér. SpeedKore notar sérsmíðað Magnaflow útblásturskerfi sem hannað var í kringum vélina.
Nýjum vatnskassa og millikæli var komið fyrir til að tryggja næga kælingu. Í bílnum er síðan sambyggður gírkassi frá Lamborghini Gallardo. Gírskiptingin er síðan hönnuð í anda Ítalanna.
Gerður til að þola læti
Bíllinn situr síðan ofan á alveg nýjum grunni sem hannaður er af SpeedKore. Fjöðrunarkerfið var sett saman úr nokkrum íhlutum frá framleiðendum sem sérhæfa sig í aukabúnaði fyrir kappakstursgeirann.
QA1 höggdeyfarnir voru tjúnnaðir með brautarakstur í huga. Síðan eru öflugar sex arma Brembo bremsur að framan á meðan fjögurra arma Brembo bremsur sjá um að stöðva afturhjólin.
Undir bílnum eru síðan 275mm breiðir hjólbarðar að framan en hvorki meira né minna en 345mm að aftan sem ættu að gefa ansi gott grip.
Enginn lúxus
Það fer lítið fyrir pjátri í innréttingunni. Komið hefur verið fyrir einföldum körfustólum og það meira að segja án höfuðpúða og öryggisbeltið er bara tveggja punkta eins og í gamla daga. Mælasettin í mælaborðinu kallast á við aldur bílsins.
Einnig hefur verið settur öryggisveggur á milli vélar og ökumannsrýmis ásamt veltigrind. Og sennilega veitir ekki af.
SpeedKore hugar ekki á smíði fleiri svona bíla. Hins vegar gæti svo sem alveg verið að einhverjir væru tilbúnir að eyða háum upphæðum til kaupa sér á einn svona – maður veit aldrei.
Byggt á grein Autoblog
Myndir: SpeedKore
Umræður um þessa grein