Þar sem fleiri lesendur virðast eiga góðar minningar um gamla Citroën DS en þeir sem eiga miður góðar minningar um hann, þá ætla ég að koma með aðra íslenska kvikmyndasnilld þar sem slíkur bíll fór með hlutverk. Áhættuhlutverk jafnvel.
Um daginn var til umfjöllunar myndbandsbútur úr kvikmyndinni Á köldum klaka eftir hinn magnaða Friðrik Þór Friðriksson. Hlekkur á þá umfjöllun er að finna hér neðst.
Lesandi benti á að í hinni óborganlegu kvikmynd Guðnýjar Halldórsdóttur, Kristnihald undir jökli frá árinu 1989, væri einmitt Citroën DS. Þakka ég fyrir góða ábendingu!
Sé ég ekki betur en að númeraplatan á bílnum sé erlend, sbr. skjáskotið en nú er ég nokkuð viss um að einhverjir lesendur þekki til og geti, á Facebookþræði þessarar færslu, sagt okkur meira um þennan tiltekna bíl. Jafnvel hvort þetta hafi verið síðasta kvikmyndahlutverk hans.
Hér er Citroën á Snæfellsnesi og þau Margrét Helga Jóhannsdóttir og Sigurður Sigurjónsson í hlutverkum sínum. Hún sem hin seiðmagnaða Úa og hann sem umboðsmaður biskups.
Tengt efni sem bráðnauðsynlegt er að kunna skil á í hinu stóra samhengi:
Þegar frosinn Citroën DS sló í gegn
Ekið á gargönum eftir ropvatni – Laxness og bílar
Besta bílaatriði íslenskrar kvikmyndasögu?
?Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein