Þá er komið að því: Opel hefur fengið samastað en Brimborg tók við umboðinu um áramót. Lítið hefur verið fjallað um breytingarnar á sölu Opel hér á landi en núna er allt að gerast. Fyrstu bílarnir koma í mars.
Eins og fram kom í byrjun desember voru gerðar miklar skipulagsbreytingar á sölukerfi Opel og ný stefna mörkuð af þýska framleiðandanum. Þar mun Ísland leika stórt hlutverk en markmiðið er að Opel verði í fararbroddi í orkuskiptum á Íslandi.
Á vef Brimborgar segir að sömuleiðis verði lögð áhersla á „einföld, hagstæð bílakaup á netinu eða hagstæða langtímaleigu á netinu.“
Vefur og vefsýningarsalur að verða til
Í smíðum er nýr vefur og verður slóðin á hann www.opelisland.is. Við munum eflaust fjalla um vefinn þegar hann fer í loftið en það ætti að vera á næstu dögum, samkvæmt umboðinu. Á þeim vef verður „innangengt“, ef svo má segja, inn í vefsýningarsal.
Úrvalið mun ekki einskorðast við fólksbíla því sendibílar Opel eru fjölmargir og útfærslurnar ýmsar. Bensín- og dísilvélar verða þar á meðal auk rafknúinna gerða.
Fyrstu rafbílarnir frá Opel koma í næsta mánuði, þ.e. fólksbílarnir en sendibílarnir í apríl.
Netsala er það sem koma skal og vísað er hér í frétt af vefsíðu Brimborgar:
„Netsala skapar hagræðingu hjá Brimborg sem gerir kleift að bjóða meira úrval bíla með ríkulegri staðalbúnaði, öflugri þjónustu og lengri ábyrgð á hagstæðara verði. Verðlistar fyrir rafmagnaða Opel bíla hafa verið kynntir og eru fyrirliggjandi hjá söluráðgjöfum og verða á nýja Opel vefnum.“
Nýr tímabundinn Opel sýningarsalur opnar á Bíldshöfða 8 í Reykjavík og á Akureyri í mars 2022. Frétt Brimborgar má lesa hér.
Tengdar greinar:
Brimborg tekur við Opel
Sportlegur rafdrifinn borgarbíll
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein