Föstudagur, 30. maí, 2025 @ 15:55
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Bílskúrinn í vídeótækinu

Malín Brand Höf: Malín Brand
06/09/2022
Flokkar: Bílaheimurinn
Lestími: 3 mín.
265 20
0
136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Bernskuminning bílablaðamanns

Eftir indælan kvöldverð hjá vinafólki á Vestfjörðum upphófust bráðskemmtilegar umræður um óknytti og skelmisbrögð barna. Hló undirrituð manna hæst þegar sögð var saga af syni vina minna sem tróð sultusamloku og seðlaveski (sem geymdi sparifé fjölskyldunnar) inn í vídeótækið.

Þetta fannst mér nú sniðugt. En svo hætti ég að hlæja þegar minning ruddist fram; minning sem ég vonaði að væri ekki bara bæld heldur hreinlega fölsk!

Bílskúrinn fíni í stofunni okkar

Minningin er víst sönn og spratt fram ljóslifandi í mínum saklausa kolli. Fyrir hugskotssjónum mínum sá ég Matchbox bílana alla sem lagt hafði verið snyrtilega inn í bílskúrinn. Bílskúrinn sem þeir komust ekki út úr aftur. Bílskúrinn var nefnilega vídeótækið á heimilinu.

Varð uppi fótur og fit þegar VHS-spólan komst ekki inn í tækið. Auðvitað ekki! Bílskúrinn (vídeótækið) með sjálfvirka opnarann (fjarstýringuna) var stappfullur. Ekkert pláss fyrir neitt annað en Fiat 127, Fiat Ritmo, Renault 5 GT Turbo og svo, þann sem gerði útslagið, Jeep Wagoneer ´86, sem var svo stór að beita þurfti afli til að koma honum í innsta stæði „bílskúrsins“.

Og þar sat hann fastur. Því hann hafði beyglað eitt og annað þegar honum var lagt í þetta stæði.

Rafeindavirkjanum, Einari heitnum Oddgeirssyni, var ekki skemmt þar sem hann skrúfaði vídeótækið í sundur. Ég hélt auðvitað að hann væri að þessu til að frelsa bílana mína svo ég gæti haldið áfram að leika mér með þá… En nei, það var víst ekki tilgangurinn. Samt fagnaði ég mjög þegar Wagoneerinn losnaði úr prísundinni.  

Rafeindavirkinn hafði víst nóg á sinni könnu og tækið fór í viðgerð. Þá vissi ég nú ekki að bílskúrar gætu farið í viðgerð. En svona vissi maður nú fátt í gamla daga.

Hringtorgið í hillunni

Aldrei leiddist mér, enda átti ég mína Matchboxbíla. Umferðarreglurnar setti ég sjálf og vegamálastjóri var einmitt líka ég! Það var gaman.

Bílarnir rötuðu út um allt, enda handdrifnir og þar af leiðandi með drif á öllum hjólum. Þeir rötuðu upp af stofugólfinu, upp í hillurnar, yfir hljómplöturnar (Dolly Parton, Bítlarnir, Stones og félagar urðu undir) og alla leið upp á hringtorgið.

Hringtorgið var staðsett ofarlega í hillusamstæðu, til þess að fullorðna fólkið gæti auðveldlega sett „plötu á fóninn“. Því þurfti ég að ná mér í píanóbekk (sem reyndar tilheyrði orgeli, því þegar mamma bað pabba að fara og kaupa píanó kom hann víst skælbrosandi heim með orgel „því það kostaði miklu minna en píanó“ og þetta mátti ekki minnast á…) og upp á píanóbekkinn brölti ég með bílana í fanginu. Því næst lyfti ég armi plötuspilarans ofurlítið til að húllumhæið færi í gang og þar með var hringtorgið tilbúið til notkunar.

Dæmigert hringtorg frá níunda áratug síðustu aldar, í það minnsta í augum barns nokkurs. Mynd/Unsplash.

Ég vissi að nálina mátti aldrei snerta og hana skyldi umgangast af sömu nærgætni og augastein mannsaugans. Þetta passaði ég uppá þegar ég setti nokkra bíla í einu á „hringtorgið“ góða í hillunni. Svo freistaðist maður auðvitað til að setja á 78 snúninga og þá þeyttust Matcboxararnir út um allt!

Þá kom mamma inn í stofuna og hún var ekki kát. Enda skildi hún hringtorg aldrei almennilega, blessuð sé minning mömmu.

[Birtist fyrst í ágúst 2021]

Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.

Fyrri grein

Þróun vatnskassagrillanna hjá Mercedes

Næsta grein

Trukkar eða parhús?

Malín Brand

Malín Brand

Akstursíþrótta- og blaðamaður

Svipaðar greinar

Nýr BMW M5 kynntur hjá BL. Fáránlega flottur!

Nýr BMW M5 kynntur hjá BL. Fáránlega flottur!

Höf: Radek Werbowski
29/05/2025
0

Fimmtán ár. Sá tími sem það tók BMW að kynnan nýjan M5. Á meðan uppgötvaði mannkynið Higgs-bósoninn, sænskur unglingur uppfræddi...

Bílakaupendur eru tilbúnir að skipta um vörumerki á grundvelli orðspors eingöngu

Bílakaupendur eru tilbúnir að skipta um vörumerki á grundvelli orðspors eingöngu

Höf: Pétur R. Pétursson
28/05/2025
0

Rannsókn frá American Muscle: af hverju hættir fólk við að kaupa rafbíla? Tvær meginástæður eru fyrir því að kaupendur hætta...

Nissan Micra snýr aftur – rafdrifinn, með allt að 407 km. drægni og líkist forveranum frá 1990

Nissan Micra snýr aftur – rafdrifinn, með allt að 407 km. drægni og líkist forveranum frá 1990

Höf: Pétur R. Pétursson
26/05/2025
0

Nýja kynslóð Nissan Micra kemur á markað seint árs 2025 – glæsilegur rafbíll byggður á grunni Renault 5 Nissan Micra...

Þjónustudagur Toyota

Þjónustudagur Toyota

Höf: Pétur R. Pétursson
16/05/2025
0

Árlegur þjónustudagur Toyota verður á laugardag, 17. maí frá kl. 11 – 15. Valdir þjónustuaðilar taka vel á móti Toyota-...

Næsta grein
VW T-Roc sá söluhæsti í Evrópu í júlí

VW T-Roc sá söluhæsti í Evrópu í júlí

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílasýningar

Bílabúð Benna sýnir sjö kynslóðir af Porsche Targa sportbílum 

30/05/2025
Bílaheimurinn

Nýr BMW M5 kynntur hjá BL. Fáránlega flottur!

29/05/2025
Bílaframleiðsla

Bílakaupendur eru tilbúnir að skipta um vörumerki á grundvelli orðspors eingöngu

28/05/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.