Varúð! „Nördastöff. Hér er hreinræktað nördamyndband og þá er búið að vara við því. Bílaflutningabílar með Novitec Ferrari 812 N-LARGO og 812 GTS N-LARGO bílum eru hér affermdir og það geggjað að hlusta á þessar V12 vélar.
En það er líka stressandi að fylgjast með gaurunum bakka út úr flutningabílunum. Hver bíll kostar frá 40 milljónum til 53 milljóna. Þetta eru sennilega síðustu eintökin af þessum gerðum því skv. síðu Novitec eru ekki fleiri N-LARGO fáanlegir. Sennilega eru þessir 812 V12 bílar með þeim síðustu sem fyrirtækið breytir af gerðinni því Ferrari tekur ekki lengur við pöntunum á þeim.
Þeir eru vel „tjúnaðir“ frá Novitec því þegar búið er að „mappa“ GTS-inn er hann 829 hestöfl. Um allar breytingarnar sem gerðar eru á bílunum má lesa hér.
Þeir sem eru að nörda yfir sig vilja kannski kynningarmyndbandið á GTS N-LARGO frá Novitec en það er hér og er frekar flott:
Umræður um þessa grein