Adventum Coupe er tveggja dyra Range Rover sem aldrei var
- En fyrsta eintakið af sérsmíðuðum coupé-sportjeppa á þessum grunni er samt orðið að veruleika frá Niels van Roij
- Aðeins 100 eintök verða smíðuð – verðið er frá 40,6 milljónir króna
Á bílasýningunni í Genf 2018 kom Land Rover öllum á óvart með Range Rover SV Coupe, tveggja dyra Range Rover framleiddur af „sérbíladeild“ fyrirtækisins eða „Special Vehicle Operations” (SVO).
Bílaframleiðandinn ætlaði að smíða 999 eintök þeirra fyrir um (39,8 milljónir króna) stykkið, sem hefði gert SV Coupe dýrasta bílinn úr verksmiðju Range Rover nokkru sinni. En það var ekki liðið ár, eftir dapurlega fjárhagslega ávöxtun Jaguar Land Rover árið 2018, hætti Land Rover við SV Coupe og hafnaði viðskiptavinum sem höfðu þegar valið sér bíla með viðbótarkosti fyrir allt að 8 milljónir króna.
Hönnunarfyrirtæki og bílasmiðja Niels van Roij Design í London kom til bjargar ekki löngu seinna og lofaði eigin tveggja hurða coupé „Range Rover“ sem þeir kölluðu Adventum Coupe.
Teikningarnar sem komu fram á þeim tíma gáfu vonir um raunverulega útkomu. Nú þegar fyrsta framleiðslueintakið er tilbúið fyrir kaupanda er hægt að tilkynna að Adventum Coupe er nákvæmlega það sem búist var við.
Breyttur frá hönnun Range Rover
Niels van Roij gerði nokkrar breytingar frá tveggja hurða hönnun SVO Land Rover. SVO hafði breytt miklu frá hefðbundnum Range Rover, nema vélarhlífina og neðri hluta afturhlerans, van Roij lét brettin og efri hluta afturhlera halda sér áfram. Allt annað frá A-bita að afturenda er breytt til að falla að raunverulegum coupe línum sportjeppans. SVO útgáfan var knúin áfram af 5,0 lítra V8-vél með forþjöppu, sem er 557 hestöfl og 700 Nm tog. Þessi tiltekni Adventum notar aðeins minni vél, V8 með forþjöppu, 518 hö og 600 Nm.
Smíðaður í Hollandi
Það er yfirbyggingaverkstæði Bas van Roomen í Hollandi sér um raunverulega smíði.
Yfirbygging úr styrktu áli til að viðhalda stífleika og heilleika, hver hluti yfirbyggingar er formaður til í höndum úr áli. Arctic White málning að utan kallast á við innréttingu með rauðu og svörtu Nappa leðri og gljáandi svörtu píanólakki.
Þetta er hönnun eins og hún gerist best, mínímalískt útlitið að utan er andstætt fíngerðum innréttingum. Nýju hurðaspjöldin eru með rauða leðurvasa og mismunandi hurðarhandföng fyrir farþega að framan og aftan. Aftursætin eru rafstillanlegir stólar. Gólfklæðningar, allt frá framsætum að farmrými, er klætt með handunnu tekki með hvítum samsetningu til að passa við litinn að utan. Rautt handfang í rauðu leðri lyftir gólfinu á farmrýminu og tvær samsvarandi rauðar og svartar regnhlífar sitja í vörumerktum Adventum hólfum á hlið farmrýmisins.
Aðeins 100 bílar smíðaðir
Van Roij mun smíða aðeins 100 eintök af Adventum Coupe, hver þeirra byrjar á € 270.000 (40,6 milljónir króna); ef kaupandinn vill aðra gerð af Range Rover sem undirvagn gæti það breytt verðinu.
Það þarf 50.000 € innborgun (7,5 milljónir króna) til að tryggja einn, og smíðin tekur „að minnsta kosti sex mánuði“.
Umræður um þessa grein