Þessi er til sölu um þessar mundir. Virkilega fallegur, endurgerður Volvo Duett fr´aárinu 1965. Í þessum er B18, fjögurra strokka vél með fjögurra gíra beinskiptingu.
Rauða innréttingin í þessum Duett passar mjög vel við þennan lit á bílnum. Skottið er frágengið með timburklæðningu.
Volvo Duett þessi er tvílitur með bláu lakki en algengt var að þeir væru einlitir þessir bílar og oft notaðir sem vinnubílar hér á landi. Í þessum bíl eru aukahlutir eins og toppgrind sem var vinsæl á árum áður, sólskyggni og stuðarasplegar ásamt auka kösturum.
Volvo Duett, sem einnig er þekktur sem Volvo PV445 og seinna P210, er klassískur ferðabíll sem Volvo framleiddi á árunum 1953-1969. Þessi bíll er mjög vinsæll meðal bílaáhugamanna og var þekktur fyrir áreiðanleika, fjölhæfni og endingargóða smíð.
Árið 1965 var Duett útbúinn með 1.8L fjögurra strokka B18 vél sem var þekkt fyrir einfaldleika og endingargæði. Bíllinn kom með drifi á afturhjólum.
Duett var fáanlegur sem sendibíll, með opnu flutningsrými, eða sem fólksbíll með tveimur framsætum og bekk aftur í.
Bíllinn var hannaður fyrir bæði atvinnu- og fjölskyldunotkun, sem gerði hann að fyrirrennara nútíma skutbíla gerða.
Volvo Duett á Íslandi
Bændur keyptu svona bíla og notuðu þá í búskap líkt og Land Rover jeppinn er þekktur fyrir. Menn fluttu hey, kindur og ýmis búnaðartæki því þetta var að sönnu bæði sendi- og fjölskyldubíll.
Trésmiðjan Hansa notaði svona bíl í útkeyrslu á sjöunda áratugnum.
Segir nú frá bónda norður úr landi sem lenti í stórhríð á leiðinni frá Akureyri heim á bóndabæ milli norður og austurlands. Bíllinn var fullur af farangri, tvö börn og heimilsköttur með í för.
Á leiðinni varð ófært vegna mikilla snjóa og ekkert í stöðunni annað en að setja keðjur undir Duettinn. Að lokum varð þó kolófært en Duettinn gekk með því að halda loftinntakinu hreinu og hitaði þannig farþega og dýr.
Þegar björgunaraðilar komu síðan eftir að fjölskyldan hafði verið heila nótt í bílnum í brjáluðu veðri var fjölskyldan í fínu yfirlæti í Duettnum. Snjórinn var hreinsaður frá og svo var ekið af stað án frekari skakkafalla. Eflaust eru til mýmargar svona sögur um bæði Volvo og aðra bíla í erfiðum aðstæðum á Íslandi.
Sagan um fólkið að norðan er munnmælasaga sem höfundi var sögð
Umræður um þessa grein