- Frumsýndur laugardaginn 18. Janúar kl. 12-16 í sýningarsal Kia að Krókhálsi 13 og hjá umboðsaðilum Kia um land allt.
Alrafmagnaður Kia EV3 verður frumsýndur næstkomandi laugardag hér á landi.
Rafbíllinn er sá fyrsti sem Kia frumsýnir á árinu en hann er í flokki borgarjepplinga (crossover eða CUV).
EV3 var á dögunum í öðru sæti í vali á bíl ársins 2025, en hann kemur með sömu tækni og er í Kia EV9, flaggskipi Kia, sem nýlega vann bæði bíll ársins og rafbíll ársins hjá World Car of the Year. EV3 kemur því með tækni og akstursaðstoðarkerfum sem vanalega finnast í stærri rafjeppum.
Hann kemur með allt að 605 km drægni, 460L farangursrými og hleðslugetu frá 10-80% á 31 mínútu. EV3 er í boði með 58.3 kílówatta rafhlöðu en er einnig fáanlegur með stærri 81.4 kílówatta rafhlöðu.
EV3 kemur með þreföldum breiðskjá sem felur í sér 12,3″ margmiðlunarskjá, 5,3″ snertiskjá fyrir loftkælingu og 12,3″ LCD mælaborð og margverðlaunaðari hönnun Kia.
Kia var á síðasta ári fyrsti bílaframleiðandinn til að vinna stærstu þrjú hönnunarverðlaunin í heiminum á sama ári (Red Dot, iF, og IDEA GOLD).
Streymisþjónustur, háþróuð akstursaðstoðarkerfi og þráðlausar uppfærslur bæta notendaupplifun, en EV3 er þar að auki fyrsti bíllinn sem kemur með Kia AI Assistant gervigreindartækni.
Gervigreindin skilur flókin samhengi og tungumál og getur átt eðlileg samtöl við notendur. Gervigreindaraðstoð Kia getur þannig hjálpað til við skipulag á ferðalagi og leiðbeint notendum til að fá það mesta úr ferðinni.
„Það er ótrúlega spenanndi að kynna þennan bíl á Íslandi. Hann er í stærð sem íslendingar elska hvað mest og ekki skemmir fyrir að hann tikkar í öll box þegar kemur að drægni, tækni, útliti, rými og gæðum. EV3 er einnig með V2L, sem þýðir að hann getur gefið frá sér orku og þannig hlaðið önnur raftæki, eins og t.d. rafhjól, hitablásara, kaffivél, eða hvað sem kann að vera með í ferðalaginu“, segir Kristmann Dagsson, sölustjóri Kia á Íslandi.
Forsala er nú þegar hafin, en EV3 er fáanlegur í þremur útfærslum; Air, Earth og Luxury.
Þrátt fyrir að hafa aðeins komið á markaðinn í lok 2024 hefur EV3 þegar tryggt sér stór verðlaun á borð við Gullna Stýrið í flokknum „besta virði“ (best value – besti bíll undir 40.000 evrum) og var þar að auki annar í vali á bíll arsins 2025 á Car of the Year Award.
Þetta var fjórða árið í röð sem Kia bifreið kemst í úrslitin en Kia EV6 vann árið 2022.
Frumsýningin verður laugardaginn 18. janúar kl 12-16 í sýningarsal Kia að Krókhálsi 13 og á sama tíma hjá umboðsaðilum Kia um land allt:
• Askja Vesturlandi – Akranes
• Höldur bílasala – Akureyri
• K. Steinarsson – Keflavík
• BVA – Egilsstöðum
• Bílasala Selfoss – Selfoss
(fréttatilkynning frá Kia á Íslandi)
Umræður um þessa grein