- Porsche hefur kynnt 2025 Porsche 911 Carrera S, sem kemur í kjölfar kynningar á uppfærðum 911 Carrera og nýja 911 Carrera GTS T-Hybrid.
2025 árgerð 911 Carrera S fær nokkrar litlar útlitsbreytingar, en stóru fréttirnar eru þær að það er meiri kraftur í boði. 3,0 lítra sex strokka boxer vélin með forþjöppu skilar núna 480 hestöflum (353 kW), sem er 30 hestafla aukning en hún gefur einnig 530 Nm af togi.
Til að gefa vélinni meira afl segir Porsche að þeir hafi bætt við nýju túrbói og fínstillt hleðsluloftskælinguna. Aflið er sent til afturhjólanna með átta gíra skiptingu með tvöfaldri kúplingu (PDK).
Hröðun Carrera S Coupe úr 0-100 km/klst á 3,3 sekúndum – 0,2 sekúndum hraðar en forverinn – þegar hann er búinn Sport Chrono pakkanum og nær hámarkshraða á braut 308 km/klst.
2025 911 Carrera S fær einnig meiri staðalbúnað, eins og sportútblástur og bremsur sem koma úr síðasta Carrera GTS. Hann fær einnig uppfærða dempara sem eru viðbragðsmeiri, en stýring á afturöxli er valfrjáls.
Að innan er meira leður, kæld þráðlaus hleðsla snjallsíma og akstursstillingarhnappur á upphitaða stýrinu. 911 Carrera S Coupe er staðalbúinn með aðeins tveimur framsætum, en aftursætin eru valfrjáls án aukakostnaðar. Cabriolet útgáfan eða blæjubíllinn, er aðeins fáanleg með fjórum sætum.
(vefur Porsche og Torque Report)
Umræður um þessa grein