Mér hlotnaðist sú ómælda ánægja að fá að aka fáránlega skemmtilegum bíl í Póllandi í lok ársins. Þessi bíll heitir Cupra Formentor VZ, bensínknúinn sportbíll með 333 hestafla mótor sem togar um 420 Nm.
Þessi Cupra Formentor er í einkaeigu vinar í Póllandi sem leyfði mér fúslega að prófa gripinn. Áferðin á lakkinu er mött og kemur afar vel út. Virkilega flottur bíll á götu.
Cupra Formentor VZ
Ég tók í bílinn í myrkri og þokuslæðingi og gat því ekki sprett úr spori eins og ég hefði viljað. Hins vegar setti ég á S2 stillingu og fékk þá aðeins meiri þyngd í stýrið og hljóðgervil sem hermir eftir alvöru bensínmótor.
19 tommu low profile, Sennheiser græjur og öflugur bremsubúnaður.
Það er skemmst frá því að segja að þessi flotti bíll lá eins og grjót á veginum. Þú situr mjög vel í þægilegum sætum bílsins sem halda mjög vel við líkamann. Vá, hvað ég væri til að geta keypt svona bíl hér á landi.
Bíllinn liggur frekar lágt og er með lægri yfirbyggingu en í þeim sport jepplingum sem við eigum að venjast. Þannig verður þetta kvikindi ansi sportlegt ásýndar.
Fullur salur af flottum Cupra
Ég skoðaði aðeins úrvalið af þessum bílum í kjölfarið. Kemur þá í ljós að tveir splunkunýir rafmagnsbílar eru nú í boði. Cupra Tavascan sem er Coupé gerð svipuð og Skoda Eniaq og VW ID.5.
Cupra Tavascan er glæsilegur Coupé rafbíll.
Hann kemst allt að 569 km á einni hleðslu skv. WLTP. staðlinum. Hann getur hlaðið um 100 km. á aðeins 7 mínútum og 10-80% á um 28 mínútum.
Cupra Formentor er fjölskyldusportari í orðsins fyllstu merkingu.
Svo er það þessi splunkunýi en samt keimlíki Cupra Born. Já, keimlíki vegna þess að ég get ekki betur séð en að þetta sé bara ID.3 með nýjum merkjum og smá yfirhalningu.
Byggður á VW grunni
Það er svo aftur á móti ekkert skrítið því Cupra er vörumerki undir hatti VW og var áður keyrt á vörumerkinu Seat. Úps, já Seat var nú svona og svona í gamla daga. En það er breytt. Í dag er þessi Cupra náttla ekkert annað en VW í grunninn, eins og fleiri bílar t.d. Ford Explorer hinn evrópski og bróðir hans Capri.
Það skiptir þó ekki máli hvaðan gott kemur en ég segi það og stend við að þessir Cupra bílar eru flottir og skera sig aðeins úr fjöldanum.
Cupra Born er annar 100% rafbíllinn frá vörumerkinu. Líkist óneitanlega ættingja sínum í föðurætt, ID.3
Spoilerkittið er staðalbúnaður á Cupra Born.
Með Cupra kveðjum til þeirra sem hafa með þennan bíl að gera hér á landi – Hekla.
Umræður um þessa grein