Ford Capri: Endurkoma goðsagnar?

Tegund: Ford Capri

Árgerð: 2024

Orkugjafi: Rafmagn

Þægilegur í akstri, góð sæti, nákvæmt stýri og gott afþreyingarkerfi
Varmadæla ekki staðalbúnaður
201
DEILINGAR
1.8k
SMELLIR

Ath. myndband með þessari grein.

Konan mín sagði að hann gæti verið „hvað sem er “…Ah, Capri…

Nafnið vekur vekur athygli margra bílaáhugamanna, að minnsta kosti þeirra sem muna eftir ’80s eða eru fyrir klassík.

Ford Capri er afar líkur Polestar 2. Eiginlega bara eins og Polestar í skíðagalla.

Fyrir 40 árum var Capri eitthvað sérstakt! Langt húdd, upphækkaður afturendi, sportlegur karakter (jafnvel í 1.3l útgáfunni) – einfaldlega meistaraverk!

Af hverju ekki bara nýtt nafn?

Það var því ekki skrítið þegar Ford tilkynnti um endurkomu þessarar goðsagnar að það komu tár í augun á mér (ok, kannski er ég aðeins að ýkja, en spenningurinn var raunverulegur! Sérstaklega þar sem pabbi keyrði Capri og elskaði bílinn í raun og veru).

Hinn afar vel heppnaði nýi Bronco í nýtísku mynd kveikti líka vonir mínar, Ford gerði allt rétt þar. En hvað fengum við, dreymandi um nýjan Capri?  Sojapatty í próteinbrauði í stað þess að fá djúsí grillaðan hamborgara, næstum blóðugan í hvíta glútenbrauðinu sem við bjuggumst við.

Veglegur bíll og nokkuð fallegur á að líta.

„Uppblásinn fólksbíll“ – það er nýi Capri!

En mér finnst hann meira líkjast Scorpio eftir yfirhalningu og smá steragjöf heldur en sportlegum forveranum sem kallar á smá fortíðarþrá.

Í alvöru, ef ég væri þessi Capri frá ’80s, myndi ég líklega kæra Ford fyrir meiðyrði.

Allt í lagi, ég viðurkenni, Capri lítur frekar vel út – þessi bíll lítur virkilega vel út. Kraftmikil sílúetta, upphækkaður afturendi, hallandi þak – og hann hefur kló!

Pælum aðeins í þessu… Ég veðja á að þetta hafi verið einhvernveginn svona: hönnuðir Ford sitja og drekka kaffi þegar síminn hringir frá höfuðstöðvunum. „Góðir hálsar, við eigum í vandræðum. Þessi nýi Scorpio sem þið eruð að teikna a‘la Polestar 2… hugmyndin hefur breyst, hann á að heita Capri!

Afturendinn er stílhreinn og sterklegur.

Yfirmaðurinn segir að Scorpio muni ekki seljast því upprunalegi seldist ekki og markaðsdeildin er nú þegar byrjuð að blása út fréttir um endurkomu goðsagnarinnar!“

Þannig að sveittir hönnuðirnir bættu við „hundabeins“-grilli og dustuðu rykið af gömlum Capri-teikningum til að finna þessa gluggalínu með „D“-laga glugganum.

Innanrýmið er laglegt og sætin flott, svolítill „retró” stíll yfir sætislöguninni. Tvö USB aftur í en engar miðstöðvarstillingar.

Hvað gæti farið úrskeiðis? Til dæmis frammyndavélin! Rétt fyrir miðju grillinu undir merki framleiðandans!

Líklega setti einhver nemi hana þar óvart, en það var föstudagseftirmiðdagur og enginn tók eftir því. Drama!

Af því að nýi Ford Capri er stílhreinn æpir myndavélin á mann þarna í miðjunni.

Það eyðileggur samt eilítið fagurfræðina, þetta er eins og bóla á fullkomlega sléttu andliti ungrar stúlku. Og þessi 20 tommu dekk?  Sýndarmennska! Því miður eru felgurnar alltof lokaðar, eins og í einhverri umhverfisuppfinningu.

Capri með lokuðum felgum er eins og íþróttamaður í svona skóm vitiði, þessa með fimm tám.  Jú, þeir geta hlaupið, en hvar er stíllinn, hvar er karakterinn?

Takið eftir að sjá má hönnunarlínur gamla Capri á „grillinu”.

Ég fer inn. Dökkt loftklæðning, saumur í sætum, innbyggðir höfuðpúðar, hljóðstöng ofan á mælaborðinu – glæsilegt, engin spurning!

Flott lýsing

Stemningslýsing með LED-strimlum skilar sínu. Þú getur breytt litunum að vild – frá eldgosrauðum yfir í geðróandi fjólublátt. Og þessi rétthyrndu, dempuðu loftljós sem gefa fína birtu? Snertu þau – og þú færð skurðstofulýsingu! Og það bæði að framan og aftan – bravó Ford, í þetta skiptið geta allir í bílnum fengið birtu!

Stemningslýsing kemur vel út og skapar þægilegt andrúmsloft inni í bílnum.

Það er nóg pláss í Capri, jafnvel fyrir hávaxinn mann eins og mig (187 cm). Þú getur líka setið aftur í eins og kóngur, þó sætin séu svolítið stutt.

Skottið? Risa! Rafmagsnhleri (jafnvel með hreyfiskynjun!) – og þó að það líti út fyrir að vera smá kjánalegt að veifa löppinni undir bílnum, er þetta mjög flott græja.

Rafdrifinn afturhleri sem opnast vel og þægilegt er að ganga um bílinn.

Fullt af búnaði og plássi

Krókar fyrir poka, 12V tengi, geymsla undir gólfinu – ekkert vantar. Og þetta gat í aftursætinu fyrir skíði eða IKEA gluggatjöld! Ford hugsaði um allt, ja, næstum því… þeir gleymdu loftræstingu aftur í! Farþegar í aftursæti verða annaðhvort að frjósa eða svitna, allt eftir skapi bílstjórans. En þeir geta hlaðið símana sína þar sem það eru tvö USB-tengi aftur í.

Og hvernig keyrir þessi nýi Scorpio? Furðu vel! Ég hafði ánægju af að prófa útgáfuna með 340 hestöflunum, sem bókstaflega biður um að láta spretta úr spori. Þú stígur á aflgjöfina og þessi stóri krossover COUPE (Í ALVÖRU? COUPE?? – ég útskýri á eftir) bókstaflega þrýstir okkur áfram.

Hraðamælirinn nær 100 á rúmlega 5 sekúndum, sem er áhrifamikið fyrir svo stóran bíl! Fjórhjóladrifið heldur Capri límdum við malbikið, og í beygjum líður þér eins og bíllinn sé að „draga“ þig inn í beyjuna – frábær tilfinning! Því miður halda sætin líkamanum ekki eins vel í beygjum. Betra að halda fast í stýrið.

Felgurnar eru talsvert lokaðar – við erum á þeirri skoðun að aðrar felgur færu bílnum betur, meira opnar.

Ford Capri er rúmgóður fjölnota bíll sem hentar án efa mörgum. Fullt af skemmtilegum fídusum og þægilegur í akstri. Skjárinn einfaldur, auðvelt að ferðast um afþreyingar- og stýrikerfi. Góður akstursbíll og mun örugglega ekki eiga í neinum vandræðum í slabbinu í borginni í vetur.

Ekki Coupé heldur venjulegur fólksbíll

Förum aftur að hugtakinu „SUV Coupé“ sem er tekið úr frétta- og markaðsefni framleiðandans – Ford, fyrirgefðu, hvar sérð þú Coupé? Þú ættir kannski að kíkja inn á Wikipedia og sjá skilgreininguna á Coupé og biðjast svo kannski afsökunar! Og til að gera þetta enn fyndnara – rafknúni Mustang-inn, sem er í raun með lögun sem líkist Coupé, kölluðuð þið SUV. Og núna er Capri „SUV Coupé“? Smá mótsögn, ekki satt?

Nú að bitru pillunni. Innréttingarefnin? Þau líta vel út, en viðkoman… tilfinningin er sú að eftir nokkra tugi þúsunda kílómetra muni Capri byrja að braka eins og húsbíll eftir sitt fimmta sumar í útleigu.

Á vindasömu Íslandi geta hurðahandföngin líka verið pirrandi, þau eru svo óþægileg að ég hélt varla hurðinni og fannst ég vera ð missa takið, því þú grípur í hurðirnar með fingrunum, ekki hendinni.

Fjöðrunin á Capri er hörð eins og klettur. Bara við að aka Reykjanesbrautina fann ég hverja einustu steinvölu, og á minnstu ójöfnum „skoppaði“ Capri glaðlega eins og ungur… mustang (þó Mustang og meira að segja Explorer frá Ford væru lausir við þetta vandamál). Stýrisbúnaðurinn er mjög nákvæmur, en stýrining er of mikil, jafnvel í sportstillingu. Þú snýrð stýrinu eins og þú værir að spila tölvuleik í PlayStation tölvu.

Snertirofar eru ofmetnir

Og þessir bölvuðu snertirofar! Á stýrinu, ljósarofanum og hljóðstyrknum á útvarpinu… Áður en þú fattar það, ert þú að ýta eins og fullur maður í hraðbanka. Ford, farið aftur í hefðbundna takka áður en einhver endar á að kýla í stýrið við að reyna að kveikja á skynvædda hraðastillinum og því dóti.

Margmiðlunarkerfið? Engar kvartanir hér. Snertiskjárinn er viðbragðsfljótur, auðveldur í notkun, hraður og með virkilega flottri grafík. Raddaðstoðin var með breskum hreim? Dásamlegt! HUD-skjárinn er líka frábær – skýr, bjartur með leiðsögu og hraðatakmörkunar upplýsingum. Allt í góðu hér.

En toppurinn – Bang & Olufsen hljóðkerfið. Hátalarinn á mælaborðinu lítur út fyrir að vera glæsilegur, en hljóðið… í besta falli miðlungs. Flatt, líflaust hljóð. Mikil vonbrigði. Ég bjóst við meiru frá svona virtu merki.

Mjög miður, því tónlistin hefði getað hulið hávaðann sem kemur utan frá. Capri er ekki mjög vel hljóðeinangraður Á á grófu íslensku malbiki er talsverður hávaði í akstri. En þegar þú stoppar á rauðu ljósi dettur á dauðaþögn eins og í kirkju.

Miðjustokkurinn? Annars vegar risastór geymsluhólf þar sem þú getur falið jólaálf úr Jysk án þess að brjóta á honum fæturna, þráðlaus hleðsla, tvöfaldir glasahaldarar og auka geymsla undir skjánum og undir miðstöðinni. Og stokkurinn er ekki sérlega vel festur, sem sagt ekki nógu vel frá genginn og gæti farið að skrölta eftir nokkur ár.

Þú kemst samt örugglega alla leið

Og rafhlaðan? Framleiðandinn lofar 592 km drægni. Í íslenskum aðstæðum eru það líklega ýkjur. Raunhæft held ég að hægt sé að reikna með um 500 km. Það sem er frábært er að skipta yfir í sportstillingu eða hækka í miðstöðinni hefur ekki mjög mikil áhrif á drægnina. Svo þú getur notið þín í hlýjunni án þess að óttast að verða rafmagnslaus einhvers staðar.

Um hleðslu – á hraðhleðslustöðvum fer Capri úr 10% í 80% á innan við hálftíma. Heima úr innstungu þarftu að bíða yfir 8 klukkustundir, en það kostar líka mun minna en einhversstaðar á hraðhleðslu úti í bæ.

Í stuttu máli er Capri, bíll sem er fullur af mótsögnum. Annars vegar nútímaleg hönnun, frábær frammistaða og ríkulegur búnaður.

Hins vegar gæði efniviðs, pirrandi snertirofar og vonbrigði með hljóðkerfið. Ford reyndi að endurlífga goðsögn en endaði með bíl án persónuleika, þó með flott nafn sem skiptir engu hér því…

Capri er svolítið eins og stefnumót eftir mörg ár með fyrstu ástinni þinni úr menntaskóla… Þetta er víst sama manneskjan, en árin og kílóin hafa sett sinn svip.

Spennan og fiðrildin í maganum hverfa hratt þegar þú horfir á afrakstur lýtalæknis og tannlæknis frá Tyrklandi – allt virðist vera á sínum stað, en ástin kemur einhvern veginn ekki aftur og tilfinningin fyrir nafninu hverfur fljótt.

Eins og konan mín sagði: Þetta þurfti alls ekki að vera Capri, þessi bíll hefði getað verið „hvað sem er“.

Myndband

Helstu tölur:

Verð: 8.290.000 kr. – 8.690.000 kr.

Orkugjafi: Rafmagn

Afl: 340 hö.

Tog: 659 Nm.

Eyðsla: 15.3/16.3 kWh/100 km.

Rafhlaða: 77 kWh. (nýtanlegt)

Farangursrými: 622/1510 lítrar

Drægni: 560/592 skv. WLTP staðli

Drif: AWD

Ljósmyndir, myndbandsupptaka og texti: Radek Werbowski

Myndbandskynning: Pétur R. Pétursson

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar