- Laugardagurinn 26. október er stór dagur hjá jeppaáhugafólki og öðrum unnendum góðra bíla því þá verður nýr Land Cruiser 250 frumsýndur kl. 12 – 16 hjá viðurkenndum söluaðilum Toyota í Kauptúni, Reykjanesbæ, á Selfossi og Akureyri.
Hér er Land Cruiser 250 í sínu náttúrulega umhverfi, við Einhyrning. Ljósmynd: Björn Steinbekk
Bíllinn hefur að undan förnu verið prófaður við margvíslegar aðstæður allt frá borgarakstri til erfiðustu torfæruvega og stendur hann fyllilega undir væntingum, sem þó voru ekki litlar.
Land Cruiser 250 í reynsluakstri – Myndband: Björn Steinbekk
(fréttatilkynning frá Toyota á Íslandi)
Umræður um þessa grein