- BL og Bílabúð Benna frumsýna tvo nýja SUV um helgina
Nýr og uppfærður Nissan Qashqai
BL frumsýndi alveg nýjan Nissan Qashqai um helgina. Þegar við komum á svæðið var fullt af áhugasömu fólki að skoða nýja Qashqai-inn enda vinsæll bíll á Íslandi um árabil.
Nýr Nissan Qashqai.
Bíllinn kom fyrst á markað árið 2006 og hefur selst í rétt tæplega fjórum milljónum eintaka síðan hann hóf innreið sína á SUV markaðinn.
Sá nýi er talsvert uppfærður og kemur nú með 1332 cc vél sem er gengur fyrir bensíni og rafmagni (hybrid).
Nú eru allar útgáfurnar sjálfskiptar, bæði framdrifnu og fjórhjóladrifnu. Hestöflin eru um 156 og áætluð eyðsla um 6.8 lítrar á hverja 100 km.
Flott verð og margar útgáfur
Verðið er frá 7.290.000 kr. og upp í 8.990.000 kr. þegar búið er að hengja allt skrautið sem í boði er við bílinn. Þá erum við að tala um 19 tommu álfelgur, minni í hliðarspeglum rafdrifin framsæti, sóllúga, rafdrifinn afturhleri og allt það helsta sem bíll í efsta verðbili á að hafa.
Öryggisbúnaður í Nissan Qashqai er meðal annars akreinavari, eftirlitskerfi fyrir ökumann, aðvörun á hliðarumferð, vegaskiltanemi, skynvæddur hraðastillir og blindhornaviðvörun svo eitthvað sé nefnt.
Sérlega vandaður frágangur á nýjum Nissan Qashqai
Grunntýpan er þokkalega búin en eftirtektarvert er hve margar útfærslur eru í boð – Acenta, N-Connecta, N-design og loks Tekna.
Við hjá Bílablogg erum þegar búin að óska eftir reynsluakstri og bíðum eftir að fá úthlutað tíma.
KGM Torres EVX rafbíll
Bílabúð Benna frumsýndi splunkunýjan 100% rafbíl um helgina en hann ber nafnið Torres og er frá kóreaska bílaframleiðandanum KGM.
Nýr KGM EVX Torres 100% rafbíll.
KGM markar nýtt upphaf á íslenskum bílamarkaði en á þessu ári breytist nafn hins gamalgróna framleiðanda SsangYong í KGM.
SsangYong hefur verið leiðandi bílaframleiðandi í 70 ár og boðið upp á öfluga og vel útbúna bíla á góðum kjörum.
KGM mun halda áfram að bjóða upp á fjölbreytt úrval jeppa og jepplinga sem og kynna nýja og glæsilega línu 100% rafbíla á næstu misserum.
Torres EVX er stór, rúmgóður og 100% rafmagnaður. Djörf og framsækin hönnun, fyrsta flokks innanrými ásamt nýrri, háþróaðri rafhlöðutækni sem ábyrgir rafmagnað ferðlag í milljón kílómetra.
Allt að 462 km drægni (skv. WLTP)
73,4 kWh rafhlaða
Allt að 1.500 kg dráttargeta
Stafrænt mælaborð ásamt 12,3″ margmiðlunarskjá
Ríkulegur staðalbúnaður
7 ára ábyrgð
10 ára ábyrgð á rafhlöðu eða 1.000.000 km, hvort sem kemur á undan
Virkilega veglegur bíll og flottar innréttingar
Með allt að milljón kílómetra ábyrgð á rafhlöðu
Rafhlaðan í Torres EVX er stór og aflmikil en hún er 73.4 kWh að stærð sem skilar 152 kW afli (201 hö) og hámarkstog er 339 Nm.
Hún er sú nýjasta á markaðnum í dag enda fylgir henni 10 ára ábyrgð eða 1 milljón kílómetrar, hvort sem kemur á undan.
Þú ferðast því áhyggjulaus í áratug á Torres EVX. Hún þolir einnig vel hnjask og því kjörin fyrir íslenskar aðstæður.
Torres kemur í þremur útfærslum EVX Premium, EVX Adventure og EVX Adventure.
Verðið er frá 5.790.000 kr. og upp í 6.890.000 kr. sem verður að segjast frábært verð fyrir vel útbúinn bíl sem býður upp á mikla möguleika.
Við bíðum einnig eftir að fá þennan bíl í reynsluakstur. Það verður vonandi mjög bráðlega.
Myndir: Pétur R. Pétursson
Umræður um þessa grein